Sýning á “myrkraverkum” í Verksmiðjunni á Hjalteyri

Sýning á  nokkrum "myrkraverkum" þeirra Gústavs Geirs Bollasonar, Þórarins Blöndal, Florence Lucas, Roland Moreau og Vincent Chhim, verður opnuð í Verksmiðjunni á Hjalteyri laugardaginn 12. desember kl. 17. Yfirskrift sýningarinnar er; Zombí, en verkin samanstanda af hljóðverki, innsetningu og teikningum.   

Þar í skammdeginu munu flóðgáttir ímyndunarinnar opnast og henni verða allir vegir færir, því hér er nánar tiltekið um að ræða sýningu á og  í myrkri, þar sem tekist er á við myrkrið og ógnir þess sem upplifun, ekki í neinum skilgreindum listrænum tilgangi heldur mun frekar sem hríslandi skemmtun fyrir fólk á öllum aldri. Í tímans rás hefur goðsögnin um Zombí tekið á sig nokkrar mismunandi myndir og merkingar. Við þekkjum öll uppvakninging, hinn  íslenska Þorgeirsbola sem og aðrar skuggaverur, miður viðkunnanlega náunga sem hér voru sendir af kunnáttumönnum á milli landsfjórðunga.

Spurst hefur til hans víða um heiminn  og ef ekki dauðum og upprisnum, þegjandalegum, ráfandi um ankanalegur í göngulagi í erindum eiganda síns,  þá alla vegana sem hugsana og viljalausu verkfæri í hans höndum. Á seinni tímum hefur mest borið á honum í teiknisögum og kvikmyndum. Þar fer hann gjarnan um stjórnlaus, í sístækkandi hópum sísvangra og fáránlegra mannskrímsla sem hungrar helst í kjötið af samborgurum sínum og stefnir örvita að endalokum siðmenningar og heimsendi.

En það er  ekki síst hinn „heimspekilegi" Zombí sem hér ræður titli, hann mun vera lítt meðvitaður og hugsanalaus sem þó kann að haga sér og lítur  út fyrir að vera venjuleg manneskja.

Á sýningartímabilinu verða nokkrir viðburðir og verða þeir auglýstir síðar.  Sýningin stendur til 10. janúar og verður opið laugardaga og sunnudaga milli kl. 16:00 og 18:00.

Nýjast