Kvennamót í íshokkí fór fram í Skautahöllinni á Akureyri sl. helgi þar sem 50 konur frá SA, SR og Birninum á öllum aldri kepptu í þremur liðum.
Liðin þrjú sem sett voru saman voru Svörtu snákarnir, Rauðu Tígrarnir og Hvítu hákarlanir. Það var lið Svörtu snákanna sem bar sigur úr býtum á mótinu með 4:1 sigri á Hvítu hákörlunum í síðasta leik mótsins.