Þá geta gestir haft það notalegt á markaðnum yfir rjúkandi kakóbolla og heitum vöfflum með glænýrri rababarasultu. Samstarfshópurinn Fimmgangur heldur utan um Sveitamarkaðinn og leggur mikið upp úr að varningurinn sem boðinn er sé heimaunnin eða falli vel að umhverfinu og sveitalífinu. Sveitamarkaðurinn er opin alla sunnudaga frá kl. 11 til 17 og verður sá síðasti 15. ágúst.