Svæðisleiðsögunám á Norðurlandi á vegum Simenntunar HA

Símenntun Háskólans á Akureyri býður upp á Svæðisleiðsögunám á Norðurlandi í samvinnu við Leiðsöguskólann í MK og SBA- Norðurleið.  Námið er 22 einingar og fer fram á vor- og haustönn 2011 við Háskólann á Akureyri. Námið verður einnig í boði í fjarkennslu á starfssvæði Þekkingarnets Þingeyinga og Farskólans-miðstöð símenntunar á Norðurlandi vestra.  

Leiðsögunám miðar að því að þjálfa færni og hæfni nemenda til þess að standast kröfur ferðaþjónustunnar hverju sinni um áreiðanleika og fagleg vinnubrögð. Þetta nám á að veita nemendum sérmenntun á sviði svæðisleiðsagnar um Norðurland. Svæðisleiðsögunámið er fjölbreytt. Fjallað er um jarðfræði Íslands, sögu, menningu, gróður, dýralíf, atvinnuvegi, íslenskt samfélag, bókmenntir og  listir. Nemendur eru fræddir um helstu ferðamannastaði á Norðurlandi, ferðamannaleiðir og leiðsögutækni.

Áætlað er að kennsla hefjist um miðjan febrúar og ljúki í byrjun desember 2011.  Gerð er ráð fyrir að kennt verði einn seinni part í hverri viku, þriðjudaga frá kl. 16:30 til 21:10 eða 21:50. Einnig verða farnar um 5 - 6 vettvangsferðir á hvorri önn, oftast á laugardögum. Að námi loknu fær fólk réttindi til að starfa sem svæðisleiðsögumenn á Norðurlandi. Vakin er sérstök athygli á því að leiðsögumenn með réttindi geta setið staka áfanga í náminu. Skráningarfrestur er til 17. janúar.

Nýjast