Það verður stórleikur í Pepsi-deild kvenna á Þórsvellinum í kvöld kl. 18.30, þegar Þór/KA fær Fylki í heimsókn. Þór/KA er í efsta sæti deildarinnar með 19 stig eftir átta leiki og Arna Sif Ásgrímsdóttir fyrirliði, segir að ekki koma annað en sigur til greina. Fylkir er í 6. sæti deildarinnar með 11 stig. Leikurinn leggst virkilega vel í mig, það er mjög góð stemmning í hópnum og við erum allar tilbúnar í það að ljúka þessari fyrri umferð á toppnum. Það hefur aðeins borið á kæruleysi í síðustu leikjum, við lékum ekki nógu vel gegn ÍBV og svo kom kafli í Selfossleiknum, sem varð til þess að við fengum þessi tvo mörk á okkur. Í dag ætlum við að keyra á fullu í 90 mínútur og vinna sigur, sagði Arna Sif. Stelpurnar í Þór/KA hafa staðið sig mjög vel í sumar og það er því full ástæða til þess að hvetja knattspyrnuáhugafólk til þess að fjölmenna á Þórsvöllinn í kvöld og hvetja stelpurnar til sigurs. Þessi sömu lið, Þór/KA og Fylkir, mætast svo aftur á Þórsvellinum nk. föstudag, í átta liða úrslitum Borgunarbikarsins.