Álagið á starfsfólk er víða gríðarlega mikið. Ég hef þegar heimsótt nokkrar heilbrigðisstofnanir og mun halda þeirri vinnu áfram á næstu dögum og vikum. Ég stefni að því að heimsækja allar heilbrigðisstofnanir í landinu, sem heyra undir ráðuneytið. Þetta tel ég nauðsynlegt, auk þess sem slíkar ferðir dýpka örugglega skilninginn á heilbrigðiskerfinu.
Einkarekstur
Ég hef ekki sömu afstöðu í þessum efnum og heilbrigðisráðherrar síðustu ríkisstjórnar. Við eigum að nýta okkur kosti beggja þessara kerfa. Nokkuð stór hluti heilbrigðisþjónustunnar er í dag rekinn af einkafyrirtækjum, ég nefni til dæmis tannlæknana. Meðal opinberra stofnana er ríkur vilji til að starfa með einkafyrirtækjum og svo öfugt. En ég er ekki að tala um að einkavæða heilbrigðiskerfið frá A til Ö, ekkert slíkt er í kortunum.
Nánar er rætt við Kristján í prentútgáfu Vikudags