Stöðugur straumur til Akureyrar

Fjöldi fólks er saman komið á tjaldsvæðinu við Þórunnarstæri. Mynd/Þröstur Ernir.
Fjöldi fólks er saman komið á tjaldsvæðinu við Þórunnarstæri. Mynd/Þröstur Ernir.

Ein stærsta ferðahelgi ársins er framundan og má búast við að hátt ítíu þúsund manns leggi leið sína til Akureyrar í tengslum við knattspyrnumótin tvö, N1-mótið og Pollamótið. „Fólk byrjaði að streyma á þriðjudaginn og þessi vika er alltaf stór hjá okkur. Núna hefst ferðatímabilið fyrir alvöru,“ segir Tryggvi Marinósson forstöðumaður tjaldsvæðanna á Akureyri. Hann segir sumarið fara ágætlega af stað hvað varðar fjölda gesta á tjaldsvæðunum tveimur upp á Hamri og við Þórunnarstræti.

„Það er búið að vera ágætt að gera. Maí var slappur en júní gekk þokkalega. Ég er ekki búinn að taka fjölda gistinátta saman en mín tilfinning er sú að þetta sé svipað á milli ára,“ segir Tryggvi.

Tjöld á undanhaldi

Hann segir Íslendinga í miklum meirihluta þeirra sem koma á tjaldsvæðin og dreifingin sé nokkuð jöfn á milli svæðanna tveggja. Nánast eingöngu er um að ræða fólk með fellihýsi eða hjólhýsi í eftirdragi. „Svo eru húsbílarnir að verða nokkuð algengir en tjöldin á undanhaldi. Það læðist eitt og eitt inn á milli.“

throstur@vikudagur.is 

Nýjast