a) Starfsáætlanir
Bæjarstjórn felur nefndum og ráðum að yfirfara starfsáætlanir í samráði við stjórnendur og gera á þeim
þær breytingar sem nauðsynlegar eru með tilliti til fjárhagsáætlunar Akureyrarkaupstaðar. Stefnt skal að því að ljúka
yfirferðinni fyrir lok janúar 2010. Bæjarráð og bæjarstjórn munu þá taka áætlanirnar til umræðu og afgreiðslu.
b) Kaup á vörum og þjónustu
Nýta skal kosti almennra útboða við framkvæmdir og vöru- og þjónustukaup þar sem því verður við komið skv. Innkaupastefnu
Akureyrarkaupstaðar. Sérstök áhersla verður lögð á að ná ítrustu hagkvæmni í innkaupum og meta skal
endurnýjunarþörf búnaðar sérstaklega. Gerðir skulu þjónustusamningar við félög, fyrirtæki og stofnanir á þeim
sviðum sem hagkvæmni slíkra samninga getur notið sín.
c) Áherslur við framkvæmd fjárhagsáætlunar.
Bæjarstjórn ítrekar tilmæli til stjórnenda bæjarins um að gæta ítrasta aðhalds í öllum rekstri bæjarins á
árinu 2010. Mikilvægt er að allri yfirvinnu sé haldið í lágmarki og þeim eindregnu tilmælum er beint til stjórnenda að meta vandlega
yfirvinnuþörf og leita leiða til að draga úr henni. Jafnframt skulu stjórnendur meta sérstaklega þörf á nýráðningum og
möguleika á hagræðingu með breyttu verkferli þegar störf losna.