Stjórn Eyþings styður styttingar á Hringveginum

Stjórn Eyþings tekur undir sjónarmið Vegagerðarinnar um að Húnavallaleið (Svínavatnsleið) og ný veglína í Skagafirði verði settar á aðalskipulag viðkomandi sveitarfélaga. Umræddar veglínur leiða til mikilvægrar styttingar á Hringveginum. Stjórnin minnir á samþykkt frá aðalfundi Eyþings 2009 um að skoðaðir verði ítarlega möguleikar á styttingu Hringvegarins milli Norðaustur- og Suðvesturlands.

Nýjast