KA lagði Fjölnir að velli, 2-1, er liðin áttust við á Akureyrarvelli í kvöld í 1. deild karla í knattspyrnu. KA komst yfir eftir tíu mínútna leik með sjálfsmarki frá Jóhanni Óla Þórbjörnssyni en Ásgeir Aron Ásgeirsson jafnaði metin fyrir gestina sjö mínútum síðar. Það var svo Hallgrímur Mar Steingrímsson sem skoraði sigurmark leiksins fyrir heimamenn þegar átta mínútur voru til loka fyrri hálfleiks. Eftir sigurinn er KA komið með 22 stig í fimmta sæti deildarinnar og er aðeins þremur stigum á eftir Fjölni sem hefur 25 stig í öðru sæti.