30. desember, 2009 - 18:59
Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, er Norðlendingur ársins 2009 að mati hlustenda Útvarps Norður- og Austurlands.
Kjörinu var lýst í sérstakri áramótaútsendingu í dag. Þrettán voru tilnefndir en Steingrímur hlaut nokkuð afgerandi
kosningu. Í öðru sæti í kjörinu var Þuríður Harpa Sigurðardóttir á Sauðárkróki, sem fór á
árinu fyrst Norðurlandabúa í stofnfrumumeðferð á Indlandi vegna mænuskaða.