Fram hafði 17:13 forskot í hálfleik en Akureyringar gáfust aldrei upp og fögnuðu ótrúlegum sigri. Athygli vakti að aðalmarkvörður Akureyrar, Sveinbjörn Pétursson, hljóp inn í klefa um miðjan seinni hálfleik eftir að hafa fengið klaufalegt mark á sig. Umræddur Stefán leysti hann hins vegar af með sóma. Guðmundur Hólmar Helgason var heitur í sóknarleik Akureyrar og skoraði 12 mörk.
Með sigrinum er Akureyri komið upp að hlið FH á toppi deildarinnar með sex stig og hefur unnið alla þrjá leiki sína. Framarar hafa áfram 2 stig í fimmta sæti.