Fyrirtækið SS Byggir ehf. á Akureyri átti lægsta tilboð í byggingu fimmta áfanga við Háskólann á Akureyri á Sólborg en tilboðin voru opnuð í dag. Alls bárust fjögur tilboð í verkið og voru þau öll yfir kostnaðaráætlun, sem hljóðaði upp á rúmar 217,7 milljónir króna. SS Byggir bauð rúmar 218 milljónir króna, eða rúmlega 100% af kostnaðaráætlun. Hyrna ehf. á Akureyri átti næst lægsta tilboð, tæpar 229,4 milljónir króna, eða rúmlega 105% af kostnaðaráætlun, Tréverk ehf. á Dalvík bauð tæplega 230,2 milljónir króna, eða tæplega 106% af kostnaðaráætlun og fyrirtækið BB byggingar ehf. á Akureyri bauð rúmar 235,7 milljónir króna, eða um 108% af kostnaðaráætlun.
Stefnt er að því að hefja framkvæmdir við verkið sem fyrst en áætluð verklok eru 16. ágúst 2013. Þeir fjármunir sem ríkið fékk vegna sölu á 75% hlut sínum í Húsmæðraskólanum við Þórunnarstræti, alls 45 milljónir króna, verða nýttir í framkvæmdina við HA. Þegar framkvæmdum við 5. áfanga lýkur, er byggingaframkvæmdum á svæðinu lokið, í bili að minnsta kosti. Með tengibyggingu er 5. áfangi 740 fermetrar og þar verða skrifstofur kennara. Tilboðin voru opnuð í Reykjavík en það vakti athygli þeirra sem ætluðu að fylgjast með opnuninni símleiðis frá Háskólanum á Akureyri, að fá það ekki. Þeir fengu niðurstöðurnar eftir að búið var að opna öll tilboðin.