Sprengdi af sér húsnæðið

Múrbúðin á Akureyri mun flytja í nýtt og stærra húsnæði þann 1. október nk. og verður staðsett að Óseyri 1 þar sem gamla Nettó var áður til húsa. „Við erum búin að sprengja allt utan af okkur á Furuvöllum,“ segir Friðrik Einar Sigþórsson verslunarstjóri Múrbúðarinnar. Hann segir stöðuga aukningu hafa verið í sölu frá því að búðin opnaði hér á Akureyri fyrir fjórum árum. „Til marks um það má nefna að við vorum með 47% fleiri afgreiðslur núna í júlí miðað við sama tíma í fyrra,“ segir Friðrik.

Gamla Nettó húsið er 1.200 fermetrar að stærð, eða helmingi stærra en núverandi húsnæði Múrbúðarinnar að Furuvöllum. „Þetta er frábær staðsetning. Það stutt frá núverandi húsnæði og nóg af bílastæðum. Við heyrum mikla ánægju frá fjölmörgum viðskiptavinum okkar yfir hvað Múrbúðin er vel staðsett í bænum og svo verður áfram. Það er engin spurning að fyrir mjög marga er Múrbúðin fyrsti valkosturinn.“ Friðrik segir miklu muna að fá stærra húsnæði.

„Þá getum við betur sýnt vöruframboðið, bætt aðgengi viðskiptavina og tryggt að öll 25 þúsund vörunúmerin séu ávallt á boðstólum.“ Hann segir ennfremur að ráðgert sé að byggja skemmu við hlið hússins að Óseyri, til að hafa aðstöðu fyrir grófvöru á borð við timbur, plötur, steinull og annað fyrirferðarmikið byggingarefni.

Nýjast