Söngleikurinn er eftir þá James Rado og Gerome Ragni en tónlistin er eftir Galt MacDermot. Jón Gunnar Þórðarson leikstýrir Hárinu. Sumarið er 1968, tónlistin er í loftinu og hermenn á leið í stríðið í Víetnam. Miðasala hefst 21. mars í Hofi og á www.menningarhus.is.