Sólbakur EA, ísfisktogari Brims, kom til heimahafnar á Akureyri í morgun. Togarinn var á veiðum fyrir austan land og aflinn eftir um 5 daga veiðiferð
rúmlega 100 tonn, uppistaðan þorskur. Ráðgert er að Sólbakur haldi á miðin á ný annað kvöld.
Fjölmennur aðalfundur Eldri borgara á Akureyri (EBAK) fór fram i gær. Á fundinum var borin upp og samþykkt ályktun til þeirra framboða sem bjóða fram lista í komandi bæjarstjórnarkosningum þann 16 maí n.k.
15. mars er alþjóðlegur dagur Long Covid. Þá hefur Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) ákveðið að tileinka marsmánuði baráttunni gegn mýtum um Long Covid og skerpa á vitund almennings um þau alvarlegu einkenni sem fylgja þessu ástandi.
Sprettur-Inn, í samstarfi við Skólafélagið Huginn og Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis, hefur hrundið af stað nýju samfélagsverkefni undir yfirskriftinni „Sneið fyrir samfélagið“.
„Það er mjög ánægjulegt að sjá að gögn Samgöngustofu sýna skýra fækkun slysa frá því göngin voru opnuð. Eitt af meginmarkmiðum Vaðlaheiðarganga var að bæta umferðaröryggi og þessi þróun bendir til þess að þau hafi skilað þeim árangri,“ segir Valgeir Bergmann framkvæmdastjóri Vaðlaheiðarganga.
Hollvinir heimsóttu lyflækningadeild í dag og afhentu starfsfólki blómvönd og samúðarkveðju vegna fráfalls Sólveigar Huldu Valgeirsdóttur, fyrrum deildarstjóra lyflækningadeildar.