Snorra í Betel sagt upp störfum í Brekkuskóla

Snorra Óskarssyni, oftast kenndur við Betel, hefur verið sagt upp störfum sem kennari við Brekkuskóla á Akureyri. Það var í febrúar síðastliðnum sem Snorra var vikið frá störfum tímabundið, eftir að hann skrifaði um samkynhneigð og transfólk á bloggi sínu. Fram kemur á dv.is að að Snorri hafi verið kallaður á fund fræðslustjóra sveitarfélagsins þar sem hann var látinn skrifa undir uppsagnarbréf, samkvæmt því sem fram kemur á bloggi Snorra. Hann segist fá fimm mánaða rétt til launa, þriggja mánaða rétt til að kæra málið til innanríkisráðuneytisins og fjórtán daga til að óska eftir frekari rökstuðningi fyrir uppsögninni.

Nýjast