Sniglabandið 25 ára.

Sniglabandið hefur aldarfjórðungs afmælisveislu sína á Græna hattinum á laugardagskvöldið kl. 22. Farið verður yfir sögu hljómsveitarinnar í tali og tónum.  Rifjað verður upp eitt og annað sem á daga þessarar litríku hljómsveitar hefur drifið. Ævintýrin, ruglið, píurnar og poppararnir. Ekkert dregið undan nema þegar rótararnir pissuðu í viskíflösku. Það verður ekkert sagt frá því. Afmælisfagnaðurinn stendur í allt sumar. 
 

 

Nýjast