Fimmti rannsóknarleiðangur Kína á norðurslóðir er nú hálfnaður með komu ísbrjótsins Snædrekans til Íslands, en Snædrekinn hér nú hér á landi í boði íslenskra stjórnvalda. Með komu Snædrekans verður vísindalegt norðurslóðasamstarf ríkjanna styrkt enn frekar, bæði í formi rannsókna á jarðfræði hafsbotnsins og efnafræði sjávar og andrúmslofts í íslenskri landhelgi og tillagna um aukið samstarf á sviði félagsvísinda og sameiginlegri norðurljósarannsóknarstöð. Snædrekinn verður opinn til sýnis fyrir almenning á Akureyri mánudaginn 20. ágúst kl. 12:00-16:00 við Oddeyrarbryggju.
Forseti bæjarstjórnar mun setja opinn dag Snædrekans ásamt sendiherra Kína á Íslandi. Þá munu Akureyrarbær, Háskólinn á Akureyri, RANNÍS, Stofnun Vilhjálms Stefánssonar og Arctic Portal standa fyrir málþingi um málefni norðurslóða og norðurslóðasamstarf ríkjanna. Málþingið, sem haldið verður í Hofi mánudaginn 20. ágúst kl. 9:00-12:00, verður sett af forseta bæjarstjórnar á Akureyri og sendiherra Kína á Íslandi. Fyrirlesarar verða vísindamenn frá Kína og Íslandi sem munu fjalla um norðurslóðarannsóknir landanna, auk þess að taka sérstaklega fyrir þá samstarfsmöguleika sem felast í norðurljósarannsóknum á Íslandi og frekara samstarfi á á sviði félagsvísinda. Lokaávarp málþingsins flytur rektor Háskólans á Akureyri.
Sögulegur leiðangur Snædrekans um Norður-Íshaf
Á leið Snædrekans til Íslands hafa verið framkvæmdar rannsóknir bæði Kyrrahafs- og Atlantshafsmegin við Norður-Íshafið. Fyrstu rannsóknirnar fóru fram í Bering- og Chukchihafi, en engar rannsóknir voru framkvæmdar við Rússlandsstrendur. Við komuna í Noregshaf hófust rannsóknir á ný og þann 4. ágúst var fimmtán og hálfs tonna athugunardufl, sem er fimmtán metrar á hæð og sex metrar á breidd, sett á flot til gagnvirkra sjávar- og verðurrannsókna. Rannsóknirnar í Noregssjó eru þær fyrstu sem Snædrekinn framkvæmir Atlantshafsmegin við Norður-Íshaf.