Veðurstofan gerir ráð fyrir hvassviðri á Norðurlandi. Spáin fyrir landið allt er þannig:
Norðvestan 5-10 við austurströndina í fyrstu, annars hægari vindur. Skýjað víðast hvar. Norðan og norðaustan 8-13 seint í nótt og éljagangur norðanlands. Norðan 13-20 og snjókoma norðanlands eftir hádegi en hægari og stöku él sunnanlands. Einnig má búast við hvössum vindstrengjum sunnan Vatnajökuls síðdegis á morgun. Hiti 1 til 7 stig í dag. Yfirleitt frostlaust við sjóinn á morgun en annars vægt frost