Hún var ekki falleg aðkoman að grenndarstöð Gámaþjónustu Norðurlands við Bónus í Langholti á Akureyri í morgun. Tveir af fjórum stóru endurvinnslugámunum voru kjaftfullir, svo einhverjir höfðu skilið eftir plastpoka við gámana. Greinilega hefur svo einhver gert sér að leik að því dreifa úr pokunum um planið. Starfsmenn Gámaþjónustunnar bruguðist skjótt við og komu og hreinsuðu upp eftir sóðapésana. Starfsmaður fyrirtækisins sagði að yfirleitt væri umgengni um grenndarstöðvarnar mjög góð.