Skytturnar og Mammútar á toppnum á Íslandsmótinu í krullu

Þriðja umferð Íslandsmótsins í krullu var leikin í gær í Skautahöll Akureyrar og halda Mammútar og Skytturnar sínu striki. Mammútar lögðu Garpa 9:6 og Skytturnar gjörsigruðu Üllevål 14:0. Önnur úrslit urðu þau að Riddarar sigruðu Svarta gengið 6:4 og Fífurnar höfðu betur gegn Víkingi 5:3.

Eftir þrjár umferðir eru Mammútar og Skytturnar á toppnum og hafa unnið alla sína leiki. Fast á hæla þeirra kemur Svarta gengið og Riddarar með tvo vinninga.

 

Fjórða umferð Íslandsmótsins verður leikinn mánudaginn 8. febrúar næstkomandi og þá eigast við:

 

Braut 1: Garpar - Skytturnar

 

Braut 2: Mammútar - Riddarar

 

Braut 4: Svarta gengið - Víkingar

 

Braut 5: Fífurnar - Üllevål 

Nýjast