Ljóst er að starfsemin í Hofi verður umfangsmikil og fjölþætt og að umtalsverð breyting verður á högum þeirra eininga sem munu
hafa fast aðsetur í húsinu. Auk áðurnefndra aðila mun Leikfélag Akureyrar verða á meðal fastra notenda þar sem gert er ráð
fyrir því að a.m.k. ein stór uppsetning verði á ári hverju á vegum Leikfélagsins í Hofi. Samhliða opnun Hofs færist rekstur
Upplýsingamiðstöðvar ferðamála í húsið auk þess sem þar verður rekið kaffihús og veitingasala.
Áætlað er að framkvæmdum við húsið ljúki í maí og að í sumar verði unnið að lokafrágangi, stillingum og
prufukeyrslu. Bókanir á fyrsta starfsári líta mjög vel út og óhætt er að lofa fjölbreyttri dagskrá þar sem allir geta
fundið eitthvað við sitt hæfi að sögn forsvarsmanna hússins. Menningarhúsið Hof verður formlega opnað 28. ágúst 2010.