Skoraði í sínum fyrsta landsleik

Sandra María Jessen í leik með Þór/KA.
Sandra María Jessen í leik með Þór/KA.

Knattspyrnukonan Sandra María Jessen, leikmaður Þórs/KA, fékk sannkallaða draumabyrjun í sínum fyrsta A-landsleik er hún skoraði þriðja og síðasta mark Íslands í 3-0 sigri liðsins gegn Ungverjalandi í dag. Leikurinn fór fram á Laugardalsvelli og var liður í undankeppni Evrópumótsins. Markið skoraði Sandra fjórum mínútum fyrir leikslok, en hún hafði komið inn á sem varamaður aðeins þremur mínútum áður.  Margrét Lára Viðarsdóttir og Hólmfríður Magnúsdóttir skoruðu fyrstu tvö mörk íslenska liðsins, sem vermir toppsæti síns riðils.

Nýjast