Búum okkur til viðurværi sjálf og sköpum okkar eigin tækifæri. Þetta segir Leikhópurinn Þykista, nýr hópur ungra frumkvöðla frá Akureyri, sem stendur fyrir Götulistahátíðinni Hafurtask á Akureyri dagana 20-25. ágúst nk. Áherslur hátíðarinnar endurspegla tilgang og markmið Þykistu; að skapa vettvang fyrir ungt fólk til að læra, skapa og koma sér og verkum sínum á framfæri. Á Götulistahátíðinni skal allt hafurtask ungra Akureyringa borið á götur og sýnt hverjum sjáandi.
Fólk á aldrinum 15-30 ára gefst tækifæri á að skrá sig í einhverja af þeim fimm spennandi listasmiðjum sem eru í boði og taka þannig þátt í því að skapa sýningu fyrir Götulistahátíðina. Þykista aðstoðar alla hópa við kynningar og undirbúning sinna atriða. Hægt er að velja um Ráðgátuleikhús (leiklistarsmiðja), Dans inn út (danssmiðja), Hljóðkórinn (kórasmiðja), Rödd í rými (gjörningasmiðja) og Tónsjeik (tónlistarsmiðja).
Allar nánari upplýsingar og skráning í smiðjur er á hafurtask.is. Frestur er til 19. ágúst. Götulistahátíðin er hluti af Afmælisvöku Akureyrar og er styrkt af Menningarráði Eyþings og Evrópu Unga fólksins.