Skjalasafn SÍS flutt frá Húsavík til Reykjavíkur

Skjalsafnið komið í bíl á Húsavík
Skjalsafnið komið í bíl á Húsavík

 Á morgun afhendir Samband íslenskra samvinnufélaga Þjóðskjalasafni Íslands skjalasafn sitt formlega til varðveislu. Skjalasafn SÍS er mikið að vöxtum og er stærsta einkaskjalasafn sem afhent hefur verið Þjóðskjalasafni til varðveislu. Samtals er skjalasafn SÍS um 600 hillumetrar að stærð, eða rúmlega 8000 skjalaöskjur.

 

Elstu skjölin í skjalasafninu er frá síðari hluta 19. aldar og þau yngstu frá síðustu aldamótum. Skjalasafn SÍS er afar merkilegt og mikilvægt þegar kemur að rannsóknum á Íslandssögu 20. aldar á sviði viðskipta, atvinnu og stjórnmála. Eftir vinnu við röðun, uppsetningu í hillur og frágang skjalaskrár verður skjalasafn SÍS aðgengilegt almenningi og fræðimönnum snemma árs 2013.

Skjalasafnið hefur undanfarin ár verð geymt á Húsavík og var því komið fyrir í flutningabíl, sem flytur safnið suður til Reykjavíkur.

Á morgun munu svo Hannes Karlsson, formaður stjórnar Sambands íslenskra samvinnufélaga og Eiríkur G. Guðmundsson, settur þjóðskjalavörður, undirrita samning um afhendingu á skjalasafni SÍS til Þjóðskjalasafns Íslands.

 

Nýjast