Einnig fylgdist fjöldi fólks með sleðaspyrnu sem KKA akstursíþróttafélag stóð fyrir á Leirutjörn við Skautahöllina í gærkvöld. Þá er stórsýningin Vetrarsport haldin í Boganum í dag og á morgun og þar er margt spennandi að sjá. Á morun sunnudag verður ÍsCross á mótorhjólum við Skautahöllina frá kl. 14.00-16.00. Í Hlíðarfjalli er svo skíðanámskeið fyrir fatlaða sem stendur yfir alla helgina. Nánari upplýsingar um viðburðina sem og dagskrá Vetraríþróttahátíðar ÍSÍ í heild sinni má finna á www.vmi.is/vh2010