Skemmdir unnar á bekkjum við Sundlaug Akureyrar

Skemmdir voru unnar á tveimur bekkjum í nótt, sem staðsettir eru við Sundlaug Akureyrar. Þegar starfsfólk kom til vinnu í morgun, var búið að henda bekkjunum úr töluverðri hæð ofan í rampinn við íþróttahúsið við Laugagötu. Ekki létu þeir sem þarna voru að verki þar við sitja, heldur hentu gangstéttarhellum ofan á bekkina, til að ná að skemma þá almennilega. Um er að ræða trébekki á járngrind.

Nýjast