St. Georgsgildin eru starfandi um allt land. Þau eru tengiliðir milli skátahreyfingarinnar og eldri skátafélaga, en það er ekkert skilyrði að félagar í st. Georgsgildunum hafi verið skátar á yngri árum. Þeir sem eru eitt sinn skátar eru "ávallt" skátar og í þeim anda er starfsemi gildanna. Gildismenn vilja breiða skátahugsjónina út til sem flestra, sýna skátaandann í verki með hjálpsemi og ábyrgðartilfinningu. St. Georgsgildið á Akureyri var stofnað árið 1963 og var Dúi heitinn Björnsson fyrsti gildismeistari. Núverandi gildismeistari er Sigurlína Sigurgeirsdóttir. St. Georgsgildið Kvistur er einnig starfandi á Akureyri.
St. Georgsgildið á Akureyri heldur félagsfundi einu sinni í mánuði níu mánuði ársins, en auk þess eru vinnufundir á mánudagskvöldum, frá hausti fram yfir jól. Þá er unnið við leiðiskrossa fyrir Kirkjugarða Akureyrar. Í vetur voru settir upp um 2.500 krossar og er þetta verkefni aðal tekjulind félagsins. Það gerir St. Georgs-skátunum kleift að styðja við starfsemi yngri skátanna í bænum. Félagið hefur nýlega keypt húsnæði við Freyjunes, þar sem er góð aðstaða til að halda fundi og útbúa krossana. Þá á félagið einnig "sæluhús" í Aðaldal.
Meðal skátanna voru nokkrir gamlir Akureyringar, sem ekki höfðu komið í Sigurhæðir áður. Það kom þeim á óvart, hvað húsið er "stórt" og rúmgott þótt lítið sé. Þeir voru einstaklega ánægðir eð fundinn og þann góða "Matthíasaranda", sem þeir fundu fyrir í húsinu. Gísli Sigurgeirsson, húsbóndi á Sigurhæðum, var ánægður með góða gesti. Sagði fund þeirra hafa einkennst af léttleika, söng og gamansemi, eins og hæfir hjá skátum.
Hann lét þess jafnframt getið, að húsbóndinn á Sigurhæðum væri "ávallt viðbúinn" því að taka á móti góðum gestum, t.d. klúbbum eða félögum á borð við St. Georgsgildið. Þeir sem hafa áhuga geta haft samband í síma 4626649 eða gis@simnet.is, segir í fréttatilkynningu.