Skáldaganga tileinkuð Matthíasi

Matthías Jochumsson.
Matthías Jochumsson.

Skáldaganga í tilefni 150 ára afmælis Akureyrar  fer fram í kvöld, fimmtudaginn 2. ágúst kl. 20.00. Afmælisgangan verður að þessu sinni tileinkuð einu ástsælasta þjóðskáldi Íslendinga, Matthíasi Jochumssyni. Gengið verður frá Minjasafnskirkjunni á Akureyri þar sem Matthías steig sín fyrstu spor á Akureyri og að Sigurhæðum, þar sem Matthías bjó síðustu æviárin.

Gísli Sigurgeirsson, sagnaþulur, leiðir gönguna og fræðir göngugesti um skáldið og mannvininn Matthías Jochumsson. Gangan tekur um klukkustund og er þátttakendum að kostnaðarlausu. Afmælisnefnd Akureyrarbæjar og Minjasafnið á Akureyri bjóða upp á göngur öll fimmtudagskvöld í sumar.

Nýjast