Sjósund hefur verið ryðja sér til rúms á Akureyri og er sífellt að verða vinsælla. Um tíu manna hópur stundar nú reglulega sjósund í bænum allan ársins hring. Það er alltaf að koma fleira fólk að prófa og það bætist reglulega í hópinn, segir Ásta Guðný Kristjánsdóttir, sjósundsáhugakona, sem hefur stundað þessa iðju frá því í mars síðastliðnum. Hún segir alla velkomna að prófa sjósund en farið er í sjóinn við flotbryggjuna á milli Átaks og Hofs við Strandgötu.
Við pössum vel upp á alla sem eru að koma í fyrsta skipti og að það er um að gera fyrir fólk að koma að prófa. Enda er þetta gríðarlega gaman og hressandi, segir Ásta. Fyrir skemmstu skapaðist umræða um hættusemi sjósunds þar sem ástand eins og andköf, skyndileg kólnun, oföndun og sundbilun geta komið upp og jafnvel leitt til drukknunar. Aðspurð um hvort mikil áhætta stafi af því að stunda sjósund segir Ásta:
Þetta er auðvitað mikið álag á líkamann. Fyrsta skiptið sem þú ferð ofan í kaldan sjóinn að þá bregst líkaminn við og þeir sem eru veilir fyrir hjarta ættu að halda sig frá þessu. En ég hugsa að almennt séð hlýtur þetta að vera gott fyrir líkama og sál. En það þarf samt að passa að vera ekki of lengi í einu í sjónum, segir Ásta.
Fyrir áhugasama er hægt nálgast frekari upplýsingar um sjósundið á Akureyri á fésbókinni undir Sjósundfélag Akureyrar.