Akureyringurinn, þingmaðurinn og skáldið, Sigmundur Ernir Rúnarsson, gefur út sína níundu ljóðabók í vikunni en bókin kemur í verslanir á miðvikudaginn kemur, þann 29. ágúst. Bókin nefnist Eldhús ömmu Rún og er gefin út í tilefni 150 ára afmæli Akureyrarbæjar. Í bókinni lítur Sigmundur um öxl og rifjar upp gamla tíma en bókin hefur að geyma bæði ljóð og örsögur.
Þessi bók er mín gjöf til Akureyrarbæjar. Þetta er ekki dæmigerð ljóðabók og hefur einnig að geyma smásögur og allskyns endurminningar. Í bókinni einblíni ég á tímann milli áranna 1965-75 þegar ég er strákur að vaxa úr grasi. Þá var maður mikið með ömmum sínum en ömmur mínar báðar voru dæmigerðar alþýðukonur sem hreyfðu sig ekki mikið út úr húsi á þessum tíma. Þarna var tími samverunnar sterkur og nægjusemin og nýtnin alveg allsráðandi. Ég reyni að fanga þessa stemmningu í bókinni á þennan Akureyrska máta, segir Sigmundur í samtali við Vikudag.
Bókin er 90 blaðsíður en átti upphaflega aðeins vera einn kafli í nýrri bók. En þegar ég lagði af stað með þetta að þá hrundu endurminningarnar yfir mig og það væri engin leið að koma þessu frá sér í einum kafla. Úr varð því heil bók sem ég er afar sáttur við. Sigmundur segist aldrei hafa skrifað Akureyrískari bók og að margir munu kannast við ansi margt úr sögunum og ljóðunum.
Bókin er gefin út af forlaginu Uppheimum sem er einmitt í eigu Akureyringa. Þannig að þetta er eins Akureyrísk bók og hún verður, segir Sigmundur. Bókin verður til sölu í öllum betri bókabúðum og verslunum. Sigmundur Ernir verður með útgáfuhátíð laugardaginn 1. september í Eymundsson á Akureyri og mun m.a. lesa upp úr bókinni milli kl. 14:00 og 16:00 þann dag.