Siglufjarðarvegi lokað vegna skriðufalla

Siglufjarðarvegi, vestan við Strákagöng, var lokað í gærkvöldi vegna vatnsaga og skriðufalla. Úrhellis rigningu gerði á þessum slóðum undir kvöld í gær, með þeim afleiðingum að skriðurnar félllu á veginn. Svo vel vildi til að engin var þar á ferðinni þegar þær féllu. Vegagerðin stefnir að því að hreinsa veginn í dag. Þetta kemur fram á vísir.is

Nýjast