Eining-Iðja vekur athygli á breytingum á lögum um atvinnuleysistryggingar á heimasíðu sinni sem tóku gildi í síðasta
mánuði. Breytingarnar lúta að því að þeir sem eru 60 ára eða eldri og hafa fengið skertar atvinnuleysisbætur vegna þess að
þeir hafa verið að verið að fá greiðslur úr séreignalífeyrissjóði, geti átt von á endurgreiðslu úr
Atvinnuleysistryggingarsjóði sem nemur skerðingunni.
Á heimasíðunni segir enn fremur: "Þeir sem eru 60 ára eða eldri og telja að greiðslur úr Atvinnuleysistryggingasjóði til þeirra hafi
verið skertar vegna greiðslna úr séreignarlífeyrissjóði á framangreindu tímabili er bent á að sækja um endurútreikning
á greiðslum úr Atvinnuleysistryggingasjóði. Nauðsynlegt er að láta kvittun eða greiðsluyfirlit vegna greiðslna úr
séreignarlífeyrissjóði fylgja með umsókn um endurútreikning.
Framangreind breyting var m.a. gerð að kröfu ASÍ og aðildarsamtaka þess. Að vísu lagði ASÍ til að framkvæmdin yrði með
þeim hætti að Greiðslustofa Vinnumálastofnunar sæi um framkvæmdina þannig að endurgreiðsla færi fram sjálfkrafa, en að ekki
þyrfti að sækja sérstaklega um hana. Á það var hins vegar því miður ekki fallist.
Stéttarfélögin vilja koma þessum framangreindum upplýsingum á framfæri við félagsmenn sína sem ætla má að hafi
fengið skertar atvinnuleysisbætur vegna töku séreignalífeyris. Þarna getur verið um umtalsverða hagsmuni að ræða fyrir viðkomandi
einstaklinga. Umsóknarfrestur er til 1. september nk."
Allar frekari upplýsingar um málið og framkvæmdina má fá á vef Vinnumálastofnunar: http://www.vinnumalastofnun.is/frettir/nr/2163/