Akureyri Handboltafélag og serbneski markvörðurinn Jovan Kukobat hafa undirritað tveggja ára samning um að hann leiki með félaginu. Jovan Kukobat kom til Akureyrar til reynslu í nokkra daga í júní og sýndi þar að hann kann ýmislegt fyrir sér á milli stanganna. Það kom brátt í ljós að það var gagnkvæmur áhugi beggja aðila á samstarfi og nú hefur flestum hindrunum verið rutt úr vegi og kemur Jovan alkominn til Akureyrar í byrjun ágúst til æfinga, segir á vef handboltafélagsins. Jovan Kukobat er 25 ára og einn besti markvörður Serbíu og hefur, þrátt fyrir ungan aldur, verið fyrirliði liðs síns Jugovi?a undanfarin ár. Nú í sumar lék hann t.d. með serbneska stúdentalandsliðinu sem hafnaði í 3. sæti á heimsleikum stúdenta þar sem Kukobat var hetja liðsins en Serbar unnu Japani í vítakeppni í bronsleiknum.
Það er mikil ánægja í herbúðum Akureyrar með að samningar hafa tekist og nú bíða þjálfarar, leikmenn og allir aðstandendur liðsins spenntir eftir að æfingar hefjist af fullum krafti í ágúst en leikmenn eiga frí frá skipulögðum æfingum í júlí eftir að hafa æft af miklum krafti í júní, segir ennfremur á vefsíðu félagsins.