Segir stjórnarsamstarfið velta á aðildarumsókn

Grétar Þór Eyþórsson.
Grétar Þór Eyþórsson.

Standi Vinstri grænir ekki að baki aðildarumsókn að ESB er ríkisstjórnarsamstarfið á enda. Þetta segir Grétar Þór Eyþórsson prófessor í stjórnmálafræði við Háskólann á Akureyri í útvarpsfréttum RÚV. Ráðherrarnir Katrín Jakobsdóttir og Svandís Svavarsdóttir, Vinstri grænum, lýstu því yfir í fyrradag að stjórnarflokkarnir þyrftu að endurmeta ferlið. Grétar segir Samfylkinguna ekki muna líða slíkt en Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra sér enga ástæðu til þess að endurmeta umsóknarferli Íslands um aðild að Evrópusambandinu. Fari Vinstri græn fram á það þurfi að skoða stjórnarsamstarfið upp á nýtt.

Morgunblaðið staðhæfir í dag að átta af tólf þingmönnum Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs séu hlynntir endurskoðun. Utanríkisráðherra segir hinsvegar af og frá að VG geti vikið frá stjórnarsáttmálanum.

„Ég hef nú verið á þeirri skoðun og hef sagt það oftar en einu sinni og oftar en tvisvar að ef VG vill ekki standa að baki þessari aðildarumsókn mun ríkisstjórnarsamstarfið slitna. Össur vildi ekki segja það berum orðum en hann sagði það í raun og veru í þessu viðtali. Ég held að það dyljist engum að Samfylkingin mun ekki líða það í þessu. Enda lagði flokkurinn í raun allt undir í stjórnarsáttmálanum fyrir þessa aðildarumsókn,“ sagði Grétar Þór í Morgunútvarpi Rásar 2 í morgun og greint er frá á vef RÚV.

Nýjast