Segir atlögu gerða að íslenskri hönnun

Peysa frá Icewear.
Peysa frá Icewear.

Drífa ehf. sem framleiðir m.a. ullarfatnað undir vörumerkjunum Icewear og Norwear, vill vekja athygli á viðskipháttum verslananna The Viking og Álafoss, sem nýverið hófu sölu á ullarvörum sem svipar mjög til ákveðinna vara Icewear og Norwear. Forsvarsmenn Drífu ehf. telja ólíklegt að tilviljun ein ráði för, enda hafa þessar vörur fyrirtækisins notið mikilla vinsælda, ekki síst á meðal erlendra ferðamanna á Íslandi.

Verslanirnar sem eiga í hlut hafa um árabili verið í viðskiptum við Drífu og selt framleiðsluvörur fyrirtækisins. Ætti þeim því að vera vel kunnugt um hve vel þær falla að kröfum neytenda. Nú bjóða þessar verslanir til sölu samskonar vörur, vettlinga, húfur ofl. sem líkjast hönnun Drífu ehf. mjög hvað varðar efnisval, munstur, stærð og lögun. Helsti munurinn liggur í smávægilegum breytingum á prjónamunstrum. Þá eru merkingar á vörunum hér um bil eins.

Það er mat forsvarsmanna Drífu ehf. að um óeðlilega líkar vörur sé að ræða og að hætt sé við því að neytendur kunni jafnvel að rugla þeim saman. Þess ber að geta að á bak við frumhönnun á fatnaði liggur mikil vinna, kostnaður og markaðsstarf. Drífa ehf. leggur áherslu á íslenska hönnun og er stolt af sinni framleiðslu. Að sama skapi telja forsvarsmenn fyrirtækisins að með því að bjóða upp á keimlíkar vörur á umtalsvert lægra verði, hafi The Viking og Álafoss viðhaft vafasama viðskiptahætti. Í raun megi líta svo á að í framferði þeirra sé fólgin atlaga að Íslenskri hönnun.

Drífa ehf. hefur farið fram á það við fyrirtækin Hóras ehf. (Viking) og Álafoss ehf, sem reka umræddar verslanir, að þau veiti skýringar á þessu framferði. Þess var ennfremur krafist að sölu á umræddum vörum verði umsvifalaust hætt. Félögin fengu frest til þriðjudagsins 28. ágúst til þess að bregðast við þessum tilmælum. Þar sem fyrirtækin hafa ekki orðið við þessum tillmælum mun Drífa leita réttar síns.

Drífa á 40 ára starfsafmæli á þessu ári og starfsemi fyrirtæksins hefur vaxið fiskur um hrygg undanfarin ár. Stærsti hluti viðskiptavina hérlendis eru ferðamenn. Starfsmenn eru nú fimmtíu talsins en voru aðeins sex árið 2008. Fyrirtækið er með starfsemi í þremur sveitarfélögum, rekur prjónastofu í Vík í Mýrdal, saumastofu í Reykjanesbæ og er með starfsemi í Garðabæ. Drífa hefur alla tíð lagt metnað sinn í íslenska hönnun, segir í fréttatilkynningu.

Nýjast