Stúlkurnar í Þór/KA gefa ekkert eftir á toppi Pepsi-deildar kvenna í knattspyrnu en liðið burstaði FH á heimavelli sínum í kvöld, 6-0. Arna Sif Ásgrímsdóttir og Sandra María Jessen skoruðu tvö mörk hvor fyrir heimaliðið og þær Lára Einarsdóttir og Katrín Ásbjörnsdóttir sitt markið hvor. Þór/KA hefur 32 stig á toppi deildarinnar en Stjarnan getur haldið pressunni á norðanliðið með sigri gegn Val í kvöld stórleik umferðinnar.