Sandra fékk silfurskóinn

Sandra María Jessen í leik með Þór/KA í sumar.
Sandra María Jessen í leik með Þór/KA í sumar.

Sandra María Jessen leikmaður Þórs/KA hlaut silfurskóinn í Pepsi-deild kvenna í knattspyrnu. Sandra skoraði átján mörk í jafnmörgum leikjum. Elín Metta Jensen úr Val  skoraði einnig átján mörk en gerði það á færri mínútum og fékk því gullskóinn eftirsótta. Lokaumferð deildarinnar fór fram sl. helgi þar sem Þór/KA sigraði Fylki, 2-1, sem gerði það að verkum að Fylkir féll ásamt KR. Þór/KA endaði hins vegar á toppnum með 45 stig, ÍBV varð í öðru sæti með 38 stig og Stjarnan varð í þriðja sæti með jafnmörg stig.

 

 

Nýjast