Við tökum viðvaranir framkvæmdastjóra lækninga- og handlækningasviðs Sjúkrahússins á Akureyri alvarlega um að ófremdarástand ríki á tækjabúnaði stofnunarinnar. Fjárlaganefnd Alþingis er þessa dagana að fara yfir málið og ég geri mér vonir um að við þessum vanda verði brugðist í fjárlögum, segir Björn Valur Gíslason formaður fjárlaganefndar Alþingis.
Eins og fram hefur komið í Vikudegi vantar Sjúkrahúsið á Akureyri um 100 milljónir króna á næsta ári til endurnýjunar á tækjabúnaði, til viðbótar þeim 73 milljónum sem gert er ráð fyrir í núverandi frumvarpi til fjárlaga.
Við vinnum að því að finna lausnir, vonandi skýrast línur nánar um miðjan nóvember, við aðra umræðu fjárlaga. Ég lít svo á að þó svo að stjórnarnandstaðan gagnrýni okkur fyrir að skera ekki meira niður í útgjöldum ríkisins, þá sé þverpólitískur vilji til að bregðast við þeim langvarandi vanda sem verið hefur í tækjamálum Sjúkrahússins á Akureyri og Landspítalans. Athugasemdir stjórnenda spítalanna eru það alvarlegar að mínu mati að ekki verði undan því komist að bregðast við þeim með viðeigandi hætti. Ég get á þessari stundu ekkert sagt til um fjárhæðir í þeim efnum, en það er svo sannarlega verið að leita allra leiða til að bregðast við þessu slæma ástandi í tækjamálum sjúkrahúsanna, segir Björn Valur Gíslason formaður fjárlaganefndar Alþingis.
karleskil@vikudagur.is