Á sama fundi framkvæmdaráðs Akureyrar sl. föstudag, var lagt fram bréf frá Birni Óla Haukssyni forstjóra Isavia ohf um uppsögn á þjónustusamningi um viðbúnaðarþjónustu, vegna niðurskurðar og breytinga á flugvallarreglugerð. Framkvæmdaráð samþykkti að fela Helga Má Pálssyni bæjartæknifræðingi að vinna áfram að málinu.