Ferðamálastofa áskilur sér óskoraðan rétt til að nota það nafn sem hlutskarpast verður án þess að til komi aðrar greiðslur en verðlaunaféð. Ef fleiri en einn aðili eiga sömu tillögu verður vinningshafinn dreginn út. Keppnin er öllum opin og frestur til að skila inn tillögum er til 18. október 2010. Tillögum skal skila, í lokuðu umslagi merktu dulnefni, til Ferðamálastofu, Geirsgötu 9, 101 Reykjavík. Í umslaginu skal vera annað lokað umslag með réttu nafni þátttakanda, heimilisfangi og símanúmeri. Nánar um samkeppnina gæða- og umhverfiskerfið á vef Ferðamálastofu.