Hinn 17. desember sl. keypti UK Fisheries spænska fyrirtækið Pesquera Ancora sem áður var í eigu norska félagsins Aker Seafood. Þar ræður norski athafnamaðurinn Kjell Inge Rökke ríkjum. Þetta kemur fram í Viðskiptablaðinu. Kristján Vilhelmsson, framkvæmdastjóri útgerðarsviðs Samherja og jafnframt eigandi þriðjungshluta í fyrirtækinu, segir að þessi félög séu með samtals um tíu skip í rekstri. Spænska félagið er með þrjú skip, þó ekki allt árið um kring, sem veiða innan kvótakerfis ESB, einkum í Barentshafi og við Svalbarða.
Euronor hefur verið með sjö skip, þar af þrjá frystitogara, á sínum snærum. Fyrirtækið er einkum stórt í veiðum og vinnslu á ufsa. Það framleiðir um 16 þúsund tonn árlega inn á ufsamarkað. Kristján vildi ekki tjá sig um hver verðmiðinn væri á þessum fyrirtækjum, að öðru leyti en því að hann teldi hann vera ásættanlegan.