Salvör Nordal heldur fyrirlestur á Amtsbókasafninu

Salvör Nordal heldur fyrirlesturinn "Samfélag sérhagsmuna í alþjóðlegu umhverfi" á Amtsbókasafninu á Akureyri í dag, fimmtudaginn 15. apríl kl. 17.00. Salvör átti sæti í vinnuhópi um siðferði og starfshætti sem starfaði með rannsóknarnefnd Alþingis og mun fjalla um samfélagslega ábyrgð fyrirtækja út frá skýrslu nefndarinnar.  

Þetta er annar fyrirlesturinn í röð fyrirlestra um "Hrunið og heimspekina" en í síðustu viku reið Páll Skúason á vaðið þegar hann talaði um samfélag og ríkisvald og það sem fór úrskeiðis á árunum fyrir hrun. Fyrirlestraröðin er unnin í samstarfi Félags áhugafólks um heimspeki, Hug- og félagsvísindadeildar Háskólans á Akureyri og Amtsbókasafnsins á Akureyri.

Næstu lestrar eru:

22. apríl - Magnús Baldursson: Hvað er vald?*
29. apríl - Guðmundur Heiðar Frímannsson: Er samfélagssáttmálinn brostinn?
7. maí - Ágúst Þór Árnason: Hvaða lýðveldi?
Allir fyrirlestrarnir fara fram á Amtsbókasafninu, nema fyrirlestur Magnúsar sem ber upp á sumardaginn fyrsta og verður haldinn í Eymundsson, Hafnarstræti.

Nýjast