SAjun og SAsen mættust í Skautahöllinni á Akureyri í kvöld á Íslandsmótinu í íshokkí í meistaraflokki
kvenna. Eftir venjulegan leiktíma var staðan jöfn 2:2 og því þurfti að grípa til framlengingar og loks til vítakeppni þar sem SAjun
hafði betur og sigraði 4:2.
Umsóknir í Háskólann á Akureyri hafa aldrei í sögu skólans verið fleiri, en alls bárust um 2.340 umsóknir að þessu sinni. Þetta er um 15% aukning frá síðasta ári og rúmlega 8% aukning frá árinu 2018, sem var fyrra metár umsókna við háskólann.
Samningur milli HN og verktakafyrirtækisins Húsheildar/Hyrnu um byggingu fyrsta hússins á Torfunefssvæðinu hefur verið undirritaður og markar ákveðin skref í uppbyggingu svæðisins.
Hinsegin hátíð á Norðurlandi eystra verður haldin í fyrsta skiptið dagana 18.–22. júní 2025. Öll sveitarfélög á Norðurlandi eystra standa að hátíðinni og stefnt er að því að viðburðir fari fram sem víðast í öllum landshlutanum.
Felix Mendelssohn (Bartholdy) er talinn hafa verð einn mesti tónsnillingur allra tíma. Undrabarn sem á sinni stuttu 38 ára æfi samdi eina fallegustu tónlist veraldar. Jafnvel önnur tónskáld kölluð hann "hinn nýja Bach" m.a. Liszt, Schumann og Berlioz.
Ný og endurbætt A-álma hefur verið tekin í notkun í Glerárskóla. Gestum bauðst að líta á þær heilmiklu breytingar sem gerðar hafa verið á álmunni, en húsnæðið hefur verið endurnýjað á þann hátt að miklar breytingar hafa verið gerðar á vinnuumhverfi nemenda og starfsfólks.
Afköst í fiskvinnsluhúsum Samherja dragast verulega saman þegar keyptur er afli af strandveiðibátum til vinnslu. Starfsmaður sem hefur unnið í tæpa fimm áratugi hjá Útgerðarfélagi Akureyringa segir sláandi mun á gæðum hráefnis frá smábátum og togurum sem veiða á djúpslóð. Bónusar fiskvinnslufólks lækka þegar unninn er afli frá smábátum því mun tímafrekara er að verka fiskinn.
Vísir birti nýlega frétt um nýútkomna skýrslu Viðskiptaráðs þar sem fjallað er um uppsagnarvernd opinberra starfsmanna. Sá sem fréttina ritar kýs að reyna að fá fleiri „smelli“ með því að leggja skýrsluhöfundi orð í munn eins og að kalla opinbera starfsmenn „slúbberta“.
Akureyrarbær hefur ekki tekið ákvörðun um hvernig lóðum við Þursaholt verður úthlutað. Umsókn Félags eldri borgara á Akureyri, EBAK sem sótti um lausar lóðir á svæðinu var því hafnað.