Meðal þess sem Knútur og félagar lýsa andstöðu sinni við er gerð síkis í miðbænum, sem og fyrirætlanir um mörg háhýsi á litlu svæði. Óska menn sem undir skrifa eftir því að nýtt og léttara yfirbragð verði á miðbænum og þá er í nafni íbúalýðræðis skorað á bæjaryfirvöld að draga tillöguna til baka eða gangast að öðrum kosti fyrir almennri og bindandi kosningu samhliða bæjarstjórnarkosningu um skipulagstillöguna.
„Þetta hefur gengið vel, við höfum fengið góðar viðtökur við okkar málstað," segir Knútur, en undirskriftarlistar liggja m.a. frammi í versluninni Viking í Hafnarstræti, og hársnyrtistofunni Arte við Hofsbót sem og hjá Knúti sjálfum. „Okkur þykir fráleitt að gera þetta síki og eins þykir okkur byggingarmagnið vera fullmikið á litlu svæði og byggingar á köflum alltof háar. Þær sem reisa á samkvæmt skipulaginu sunnan við Hofsbótina munu t.d. birgja útisýni upp á brekkuna og á kirkjuna, ég held að fólk geri sér margt hvert ekki grein fyrir því," segir Knútur.
Undirskriftalistar verða afhentir kl. 15 á mánudag í Ráðhúsi bæjarins og hvetur Knútur þá sem vilja styðja við málstaðinn að mæta þar og taka þátt í þöglum mótmælum.