SA Valkyrjur og SA Ynjur mætast í kvöld í Skautahöllinni á Akureyri kl. 19:30 á Íslandsmóti kvenna í íshokkí.
Bæði lið hafa þrjú stig í deildinni en SA Ynjur hafa leikið einum leik meira.
Sjúkradeild Heilbrigðisstofnunar Norðurlands á Húsavík tók 19. október við veglegri gjöf frá Krabbameinsfélagi Suður-Þingeyinga. Um er að ræða tvö fullbúin sjúkrarúm og blöðruskanna, en samanlagt verðmæti gjafanna er um 4,5 milljónir króna.
Að skuldbinda sig til einhvers er að skylda sig til einhvers eða heita einhverju með hátíðlegi loforði samkvæmt íslenskri orðabók. Þetta orð hefur leitað á huga minn í talsverðan tíma. Ég er nú einu sinni þannig gerð að heilinn í mér á það til að festast í einhverjum hugrenningum og þetta orð er eitt af þeim.
Mér finnst skuldbinding fólks fara þverrandi.
Minnisvarðinn um síðutogara og síðutogarasjómenn hefur fengið afar jákvæðar viðtökur frá því hann var settur upp skammt norðan við athafnasvæði Siglingaklúbbsins Nökkva á Höefnerssvæðinu. Hann hefur vakið athygli bæði innanlands og utan. Eldri togarasjómenn stóðu fyrir söfnun vegna minnisvarðans, en þeir standa nú frammi fyrir því að um 1,5 milljónir króna vantar upp á til að greiða niður síðustu skuldir vegna þessa verkefnis.
Farþegum með Grímseyjarferjunni Sæfara fjölgaði milli ára samkvæmt nýjum tölum fyrir tímabilið 1. maí til 1. september. Sumarið 2025 flutti ferjan 6.028 farþega en sumarið 2026 voru farþegarnir 6.029. Það fjölgaði um einn farþega á tímabilinu.
Lögreglan á Norðurlandi eystra fer fram á fjármögnun fyrir sjö ný stöðugildi, þar af fimm til almennrar eflingar löggæslu og tvö vegna verkefna sem tengjast ofbeldi gegn börnum.
Tögl og tíðir: Að greiða hár barns getur verið meira en verkefni sem þarf að ljúka áður en haldið er út í daginn. Stundin getur líka gefið færi á spjalli, samveru og tengslamyndun. Á námskeiðinu Tögl og tíðir hjá Þekkingarneti Þingeyinga fá feður tækifæri til að æfa hárgreiðslu og fræðast um blæðingar. Markmiðið er að efla bæði færni þeirra og öryggi í föðurhlutverkinu.
Fyrir okkur sem búum fjarri höfuðborginni skiptir máli að við getum greiðlega sótt þangað þjónustu án þess að slíkar ferðir valdi óþarfa fjárhagsáhyggjum. Það er grundvallaratriði að búseta ráði ekki möguleikum fólks til að nýta þá þjónustu sem byggð hefur verið upp fyrir alla landsmenn í höfuðborginni. Þar spilar innanlandsflugið lykilhlutverk. Boðaðar breytingar innviðaráðherra í tengslum við Loftbrúnna valda því miklum vonbrigðum.
„Ferðaþjónusta hefur á undanförnum árum orðið afar mikilvæg stoð í atvinnulífi á Akureyri,“ segir Jóhannes Þór Skúlason framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar.