SAjun og SAsen mættust í Skautahöll Akureyrar á Íslandsmótinu í íshokkí í meistaraflokki kvenna í kvöld þar sem lokatölur urðu 4:2 sigur SAsen.
Saraha Smiley skoraði tvívegis fyrir SAsen í leiknum og þær Hanna Björgvinsdóttir og Guðrún Viðarsdóttir sitt markið hver. Mörk SAjun skoruðu Telma Guðmundsdóttir og Bergþóra Bergþórsdóttir.