Skautafélag Akureyrar byrjar Íslandsmótið í íshokkí karla af krafti en liðið sigraði Skautafélag Reykjavíkur,4:2, er liðin mættust í Laugardalnum sl. laugardag. SR komst tvisvar yfir í leiknum með mörkum frá Gauta Þormóðssyni en þeir Gunnar Darri Sigurðsson og Stefán Hrafnsson jöfnuðu leikinn fyrir norðanmenn og staðan 2:2 eftir aðra lotu.
Stefán Hrafnsson bætti við sínu öðru marki í leiknum í þriðju lotu og kom SA yfir. Það var svo Sigmundur Sveinsson sem gulltryggði 4:2 sigur SA þegar hann skoraði fjórða mark liðsins þemur mínútum fyrir leikslok. SA hefur því unnið báða leiki sína á tímabilinu og vermir toppsætið með sex stig.