Rúmlega þrjátíu athugasemdir bárust

Bílastæðin taka umtalsvert pláss  Mynd:Hörður Geirsson.
Bílastæðin taka umtalsvert pláss Mynd:Hörður Geirsson.

Skipulagsnefnd Akureyrarbæjar frestaði í gær að taka til umfjöllunar auglýsta deiliskipulagstillögu að svokölluðu Brekkuskólasvæði.  32 skriflegar umsóknir bárust nefndinnu og eru þær flestar samhljóða, þar sem gerðar eru athugasemdir til tillöguna.

Pétur Halldórsson útvarpsmaður og Viðar Már Arngrímsson kennari eru meðal þeirra sem andæft hafa tillögunni, þeir segjast ekki sjá að hún auki öryggi barnanna sem þarna eiga leið um.

Þeir hafa sett fram nýja hugmynd um að núverandi bílastæði austan Íþróttahallarinnar verði tekin undir íþróttir, útivist, leiki og kennslu. Þeir Pétur og Viðar Már hyggjast leggja fram ítarlegri tillögur að nýtingu svæðisins á næstu dögum.

karleskil@vikudagur.is

Nýjast